Í dag er laugardagur...
Í dag kemur fjölskyldan í kaffi.
Í fyrradag eldaði ég svínahamborgarhryggmeðöllu handa mömmu og Solveigu.
Í gær fór ég í bíltúr með mömmu að skoða nýbyggingar í Hafnarfirði og involuntary dagheimili í Garðabæ.
Þegar mér dettur ekkert merkilegra í hug að skrifa hér inn eftir nokkurra daga blogghlé og léleg bloggafköst þennan mánuðinn yfir höfuð...þá velti ég því fyrir mér hvort kominn sé tími til að hætta að blogga. Eða breyta um blogg. Ætti ég að fá mér eitt af þessum læstu bloggum? Ekki það að 99,9% ykkar yrði Guðvelkomið að fá leyniorðið, mér er ekki illa við nokkurn mann, en kannski yrði ég duglegri við að blogga ef ég vissi að það gæti ekki hver sem er lesið það. Sem er fyndið með tilliti til þess að ég hef hingað til þorað að koma nakin fram á þessu bloggi og játað fyrir ykkur ástarsorgir, þunglyndi, geðspítalavistun, karlamál og kynlífspælingar...
En það hefur eitthvað breyst. Þarf að hugsa þetta betur.
Gleðilega páska!