gengur bloggið svakalega vel...
Á laugardagskvöldið komu BOG stelpurnar mínar í pizzu og spil...nema hvað að annar pizzakassinn var settur ofan á eldavélina og svo hefur einhver okkar brussast utan í takkana og sett eina helluna á fullan styrk. Svo sátum við inni í stofu japlandi á pizzum og blaðrandi þegar ofvirki reykskynjarinn minn fór í gang. Ég bjóst við að hann hefði bara hrokkið í gang útaf kertum, hann er nefnilega svoooo viðkvæmur, en neinei, þá var bara lítill og sætur varðeldur á eldavélinni.
Eldvarnarteppið bjargaði ÖLLU svo ég mæli með því að fólk passi upp á að eiga svoleiðis á góðum stað í eldhúsinu (það virkar víst voða lítið grafið ofan í skúffu eða bakvið pottana í pottaskápnum). Svo voru opnaðir allir gluggar og loftað vel út, og svo bara kláruðum við óbrenndu pizzuna og spiluðum Trivial fram eftir nóttu.
Eftirminnilegt kvöld...
Posted at 11:12 am by
Flirtmaster
 |  |  |
Ingibjörg April 1, 2008 09:22 PM PDT
eldavélin verður put out of its misery... :þ
hey, ný vifta og ný eldavél, ekki alslæmt... |
 |

 |  |  |
Gunnhildur Eva April 1, 2008 09:11 PM PDT
Hæ skvís og takk fyrir mjög eftirminnilegt kvöld ;)
Ég sá nú að viftan væri dauðadæmd, en eldavélin?!?! |
 |

 |  |  |
Haraldur April 1, 2008 06:21 PM PDT
Hei ef pizzan hefði verið INNI í ofninum þá hefði þetta KANNSKI getað verið ég en ekki pizzu ofan á hellu.Eldurinn í hárinu á mömmu,varðeldurinn í herberginu mínu,girðingin sem brann og kjötið í ofninum var einhverjum öðrum að kenna. |
 |

 |  |  |
Ingibjörg April 1, 2008 05:54 PM PDT
vott? hvað var Jói að segja um mig???? |
 |

 |  |  |
Solveig April 1, 2008 05:33 PM PDT
Snúll þetta var aðeins meira en ég sá fyrir mér! ;o/
En þú hefðir átt að sjá svipinn á Jóa þegar hann var að lýsa þessu fyrir Jonna... Samúð 0 stig
En meiri samúð frá mér! |
 |

 |  |  |
Ingibjörg March 31, 2008 07:12 PM PDT
hehe já það er rétt...
annars tók ég heldur djúpt í árinni þegar ég sagði að teppið hefði bjargað ÖLLU, viftan dó og eldavélinni verður lógað...en eldhúsinnréttingin er óskemmd! :þ |
 |

 |  |  |
Dóra March 31, 2008 04:26 PM PDT
Hmm þetta er eitthvað sem ég hefði búist við frá Haraldi ..... en þið eruð þó systkini hihihihi |
 |

 |  |  |
Solveig March 31, 2008 02:37 PM PDT
Þú og íkveikjur... anyways gott að sjá aftur blogg ;o) |
 |