Ég hef víst ekki tjáð mig mikið hér um veikindi systur minnar Ljónshjarta.
En það er nú svo að Solveig systir hefur þann vafasama titil að vera versta Lúpus tilfelli Evrópu. Lúpus (Rauðir úlfar) er misalvarlegur sjálfsofnæmissjúkdómur og einkennin margvísleg. Einnig er hann algerlega óútreiknanlegur og erfiður viðureignar. Fræðiheitið á hennar sjúkdómi er Systematic Lupus erythematosus og ef þið viljið fræðast meir um hann verðið þið bara að gúgla hann, ég hvorki get né hef þrek í að svo mikið sem reyna að útskýra þennan sjúkdóm. En hann er vondur og lævís og Lúpus (Úlfur) er því réttnefni.
Aldrei nokkurntíma mun ég sætta mig við að hún skyldi fæðast með þennan sjúkdóm; aldrei nokkurntíma mun ég sætta mig við það að hann skyldi ekki vera greindur hjá henni fyrr en hún var löngu komin á fullorðinsár og aldrei nokkurntíma mun ég sætta mig við það að elliær læknir skyldi komast upp með að veita henni kolrangar meðferð í mörg ár.
Ég get heldur aldrei sætt mig við það að vera alheilbrigð og hraust meðan hennar heilsu hrakar stöðugt...og standa hjá eins og ónytjungur meðan ráðalausir læknar gera tilraunir með hin og þessi lyf á systur minni.
En árangur næst víst ekki nema eitthvað sé lagt undir. Á morgun fer hún Solveig í frekar ógnvekjandi lyfjagjöf svo ég ætla að biðja ykkur um að hugsa hlýtt til hennar, jafnvel kveikja á kerti...og óska þess að hún verði ekki mjög veik OG að þessi meðferð beri einhvern árangur.
Posted at 10:34 pm by
Flirtmaster
 |  |  |
Ingibjörg April 22, 2008 11:46 AM PDT
Sæl Ninja Dögg!
Takk fyrir kveðjuna, ég kem henni til skila - Solveig er einmitt að fara í lyfjagjöf nr. 2 í dag.
Hún kannski gúglar þig við tækifæri ;-) |
 |

 |  |  |
Ninja April 22, 2008 12:04 AM PDT
Langaði bara að commenta hér.. Var að skoða netið um Lupus og þessi síða kom upp.
Ég greyndist sjálf með Lupus fyrir rúmi ári síðan...
Kveðja Ninja Dögg
Vona að systir þinni gangi vel :) |
 |

 |  |  |
Solveig April 10, 2008 11:53 AM PDT
Takk elsku "Imbilögg" mín. Ég efast ekki um það að ég fann fyrir öllum þeim hlýju hugsunum sem mér voru sendar í gær. Það kom nefnilega á óvart hvað allt gekk vel.. Takk ástarmúsin mín og þið hin. |
 |

 |  |  |
Áslaug E. April 9, 2008 02:25 PM PDT
Ég kveiki á kerti fyrri Solveigu og hugsa hlýtt til hennar og ykkar hinna í fjölskyldunni. |
 |

 |  |  |
Rósa April 9, 2008 11:04 AM PDT
Knús handa systur þinni, ég veit sitthvað um Lúpus og ekkert af því gott. |
 |

 |  |  |
Petra April 9, 2008 10:36 AM PDT
Ég mun senda henni hlýja strauma á morgun jafnt og aðra daga. Krossa putta og vona að þetta geri eitthvað fyrir hana. Knús til ykkar allra |
 |

 |  |  |
Unnur Björk April 9, 2008 10:23 AM PDT
Það minnsta sem ég get gert er að kveikja á kerti og hugsa hlýtt til hennar og ykkar allra. Það er erfiðast að standa hjá og geta ekkert gert.
Hugs,
UB |
 |