Ingibjörg Rósa Björnsdóttir, rétt rúmlega þrítug, BA í ensku, hálfnuð með MA í sama fagi. Stórt, ljóst hár...auðþekkjanleg á háværum hlátri og afskiptum mínum af ástarlífi annarra þar sem mitt eigið er too much to handle. Dulbýst stundum sem blaðakona en starfa að jafnaði sem skrifstofuljóska, ritstjóri og frístundaljóðskáld. Áhugamál: daður og ritstörf...

www.myspace.com/ingibjorgrosa
e-mail: theflirtmaster[at]gmail.com
msn: dadurmeistarinn[at]hotmail.com


- moggabloggið mitt -


- myndaalbúmið mitt -


   

<< June 2008 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



2.6.08
Farewell

Jæja, þar kom að því...bloggþörfin er nær algerlega horfin. Síðan síðast hefur margt og mikið gerst en samt hef ég ekki fundið hjá mér þörf fyrir að tala um það hér. Það sem hefur gerst er m.a. þetta:

Ég byrjaði á framhaldsnámskeiði í Salsa.
Mamma mín útskrifaðist sem sjúkraliði og ég kafnaði næstum úr stolti.
Næsta dag útskrifaðist bróðurdóttir mín sem stúdent og ég kafnaði næstum úr elli.
Þarnæsta dag fór stórfjölskyldan í sunnudagsbrönsj á Vox og ég kafnaði næstum úr ofáti.
Ég fór í hið árlega júróvisjónpartí sem fulltrúi Tyrklands og skemmti mér konunglega, ekki síst við það að hitta elsku Jóhönnu Ýr aftur eftir langan aðskilnað.
Ég lauk loksins við síðustu kúrsa þessarar annar og í þessu MA námi yfir höfuð.
Hjördís vinkona og dóttir hennar lentu í alvarlegu slysi sem hvorki ég né aðrir erum enn búin að jafna okkur á.
Fór loksins út að borða á Santa Maria sem er tvímælalaust besti (og ódýrasti) mexíkanski veitingastaður Íslands.
Ég lönsjaði með danskri stúlku sem ég kynntist í Ástralíu '99 og hef lítið samband haft við síðan.
Suðurlandsskjálfti reið yfir með öllu sem því tilheyrir.
Ég fékk 2 einkunnir af 3, áttur í báðum tilvikum.
Ég fékk sorglegar fréttir frá Aupair fjölskyldunni minni, hin yndislega granny Rita á skammt eftir ólifað.
Ég keypti mér geggjaðan sumarkjól í SATC stíl.
Ég fór í magnað þrítugsafmæli í geggjaða kjólnum og borðaði yfir mig, aðallega af Rice Crispies kökum.
Ég missti af Sjómannadeginum og öðrum hátíðum vegna þreytu.

Þá er þessu lokið kæru vinir - á þessu bloggi hef ég alltaf reynt að blogga fyrir MIG en ekki lesendur og núna þegar ÉG get ekki bloggað meir er betra að hætta þessu alveg.
Hver veit hinsvegar hvað gerist, kannski byrja ég aftur að skrifa síðar meir, á öðrum stað og á öðrum forsendum.

Takk fyrir samfylgdina!


Posted at 11:29 am by Flirtmaster

Kolbrún
June 10, 2008   09:41 PM PDT
 
Takk fyrir mig. Verð að viðurkenna að ég hef kíkt allt of sjaldan við. Síja ;)
maría erla
June 3, 2008   07:48 PM PDT
 
change is change only :) takk fyrir mig :*
Áslaug
June 2, 2008   02:06 PM PDT
 
Ég kem til með að sakna þess að geta ekki litið hér inn öðru hvoru.
Mér hefur þótt afskaplega gaman að lesa bloggið þitt, en vonandi get ég einhvern tíman haldið áfram að lesa skrifin þín á öðrum stað og á öðrum tíma.
Solveig
June 2, 2008   12:56 PM PDT
 
Knús og takk fyrir að hafa leyft okkur að fylgjast með hugsunum þínum gegnum tíðina. Þú ert nebbla eins og UBG segir "jöffla" góður penni.
Unnur Björk
June 2, 2008   11:42 AM PDT
 
WEll ég fer nú að koma heim svo skítt með bloggið, þú ert miklu skemmtilegri í eigin persónu þrátt fyrir að vera jöffla góður penni :-)
Tryggvi
June 2, 2008   11:36 AM PDT
 
Ég er í nákvæmlega sömu hugleiðingum varðandi bloggið.

Ég þakka fyrir mig í gegnum árin.
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home