Entry: Svona... 31.3.08



gengur bloggið svakalega vel... 

Á laugardagskvöldið komu BOG stelpurnar mínar í pizzu og spil...nema hvað að annar pizzakassinn var settur ofan á eldavélina og svo hefur einhver okkar brussast utan í takkana og sett eina helluna á fullan styrk. Svo sátum við inni í stofu japlandi á pizzum og blaðrandi þegar ofvirki reykskynjarinn minn fór í gang. Ég bjóst við að hann hefði bara hrokkið í gang útaf kertum, hann er nefnilega svoooo viðkvæmur, en neinei, þá var bara lítill og sætur varðeldur á eldavélinni.

Eldvarnarteppið bjargaði ÖLLU svo ég mæli með því að fólk passi upp á að eiga svoleiðis á góðum stað í eldhúsinu (það virkar víst voða lítið grafið ofan í skúffu eða bakvið pottana í pottaskápnum). Svo voru opnaðir allir gluggar og loftað vel út, og svo bara kláruðum við óbrenndu pizzuna og spiluðum Trivial fram eftir nóttu.

Eftirminnilegt kvöld...

   8 comments

Ingibjörg
April 1, 2008   09:22 PM PDT
 
eldavélin verður put out of its misery... :þ
hey, ný vifta og ný eldavél, ekki alslæmt...
Gunnhildur Eva
April 1, 2008   09:11 PM PDT
 
Hæ skvís og takk fyrir mjög eftirminnilegt kvöld ;)

Ég sá nú að viftan væri dauðadæmd, en eldavélin?!?!
Haraldur
April 1, 2008   06:21 PM PDT
 
Hei ef pizzan hefði verið INNI í ofninum þá hefði þetta KANNSKI getað verið ég en ekki pizzu ofan á hellu.Eldurinn í hárinu á mömmu,varðeldurinn í herberginu mínu,girðingin sem brann og kjötið í ofninum var einhverjum öðrum að kenna.
Ingibjörg
April 1, 2008   05:54 PM PDT
 
vott? hvað var Jói að segja um mig????
Solveig
April 1, 2008   05:33 PM PDT
 
Snúll þetta var aðeins meira en ég sá fyrir mér! ;o/
En þú hefðir átt að sjá svipinn á Jóa þegar hann var að lýsa þessu fyrir Jonna... Samúð 0 stig
En meiri samúð frá mér!
Ingibjörg
March 31, 2008   07:12 PM PDT
 
hehe já það er rétt...
annars tók ég heldur djúpt í árinni þegar ég sagði að teppið hefði bjargað ÖLLU, viftan dó og eldavélinni verður lógað...en eldhúsinnréttingin er óskemmd! :þ
Dóra
March 31, 2008   04:26 PM PDT
 
Hmm þetta er eitthvað sem ég hefði búist við frá Haraldi ..... en þið eruð þó systkini hihihihi
Solveig
March 31, 2008   02:37 PM PDT
 
Þú og íkveikjur... anyways gott að sjá aftur blogg ;o)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments