|
Ég hef víst ekki tjáð mig mikið hér um veikindi systur minnar Ljónshjarta. Aldrei nokkurntíma mun ég sætta mig við að hún skyldi fæðast með þennan sjúkdóm; aldrei nokkurntíma mun ég sætta mig við það að hann skyldi ekki vera greindur hjá henni fyrr en hún var löngu komin á fullorðinsár og aldrei nokkurntíma mun ég sætta mig við það að elliær læknir skyldi komast upp með að veita henni kolrangar meðferð í mörg ár. |
| Ingibjörg April 22, 2008 11:46 AM PDT Sæl Ninja Dögg! Takk fyrir kveðjuna, ég kem henni til skila - Solveig er einmitt að fara í lyfjagjöf nr. 2 í dag. Hún kannski gúglar þig við tækifæri ;-) | ||
| Ninja April 22, 2008 12:04 AM PDT Langaði bara að commenta hér.. Var að skoða netið um Lupus og þessi síða kom upp. Ég greyndist sjálf með Lupus fyrir rúmi ári síðan... Kveðja Ninja Dögg Vona að systir þinni gangi vel :) | ||
| Solveig April 10, 2008 11:53 AM PDT Takk elsku "Imbilögg" mín. Ég efast ekki um það að ég fann fyrir öllum þeim hlýju hugsunum sem mér voru sendar í gær. Það kom nefnilega á óvart hvað allt gekk vel.. Takk ástarmúsin mín og þið hin. | ||
| Áslaug E. April 9, 2008 02:25 PM PDT Ég kveiki á kerti fyrri Solveigu og hugsa hlýtt til hennar og ykkar hinna í fjölskyldunni. | ||
| Rósa April 9, 2008 11:04 AM PDT Knús handa systur þinni, ég veit sitthvað um Lúpus og ekkert af því gott. | ||
| Petra April 9, 2008 10:36 AM PDT Ég mun senda henni hlýja strauma á morgun jafnt og aðra daga. Krossa putta og vona að þetta geri eitthvað fyrir hana. Knús til ykkar allra | ||
| Unnur Björk April 9, 2008 10:23 AM PDT Það minnsta sem ég get gert er að kveikja á kerti og hugsa hlýtt til hennar og ykkar allra. Það er erfiðast að standa hjá og geta ekkert gert. Hugs, UB | ||
| Leave a Comment: |