|
Það er sennilega sjaldan betra tilefni til að taka hlé frá ritgerðarskrifum og blogga en einmitt í dag...á afmælisdegi Unnar Bjarkar...já og verkalýðsdeginum... Enn þann dag í dag dettur mér ekki í hug að segja að ég hafi fengið 9 í meðaleinkunn á samræmdu prófunum því að árið sem ég lauk 10. bekk var eina árið sem prófunum var fækkað niður í tvö, stærðfræði og íslensku. Mér fannst því varla marktækt að fá 9 á þeim báðum...ég skil ekki alveg þá röksemdafærslu mína en svona hugsaði ég engu að síður. Í fjölbraut gekk mér alveg ágætlega í skólanum, einkunnalega séð, svona fyrir utan veturinn eftir að pabbi dó. Stærðfræðin vafðist alltaf mest fyrir mér og augljóst að ég var engin raungreinamanneskja enda náði ég EFN103 með 5,5 og var guðslifandifegin. Félagsfræði, sálfræði, íslenska og erlend tungumál voru mín fög. En af því að þau voru "kjaftafög" og ég skynjaði í umhverfinu að fólk með góða undirstöðu í raungreinum ætti framtíðina fyrir sér...þá fannst mér lítið unnið með því að standa mig vel í blaðurgreinum. Smátt og smátt fékk ég þó þá tilfinningu að ég gæti sennilega lært að kenna, í Kennaraháskólanum (mun minna ógnandi en hinn merki HÁSKÓLI ÍSLANDS). Svo ég sótti um og fékk inngöngu...en þorði ekki að fara. Fyrst þurfti ég að fá aðeins betri sönnur fyrir því að ég væri ekki mikið vitlausari en aðrir, það yrði svo mikil skömm að því að hefja háskólanám og gefast upp. Eins og ég hef áður lýst fannst mér fyrsta önnin síður en svo auðveld en naut þess að kynnast öllu þessu gáfaða fólki í skorinni. Mér fannst þau öll miklu klárari og betur lesin en ég og fékk aftur á tilfinninguna að ég væri bara að "bluff my way". P.S. Með tilliti til upphafs færslunnar er ég alls ekki að gefa í skyn að mikill munur sé á gáfnafari verkafólks og háskólafólks, bara munur á áhugasviðum...
|
| Sigrún Lilja May 6, 2008 02:04 AM PDT Ja hérna, það mætti halda að þú værir Skaftfellingur (dæs). Þetta er bölvaður ósiður sem við Skaftfellingar erum illa haldin af, að draga sífellt úr ágæti okkar. Sko, þú og ég, við erum ,,ógisslega" klárar og eigum eftir að verða doktorar - það er pottþétt! Sammála? Að sjálfsögðu! | ||
| Soffía May 3, 2008 12:09 AM PDT Ingibjörg! Mér hefur alltaf fundist þú vera afskaplega vel gefin og skemmtileg (annars myndi ég ekki nenna að þekkja þig, einfalt). Góður pistill annars ;) | ||
| Unnur Björk May 2, 2008 08:06 AM PDT Takk fyrir afar ánægjulegt simtal í gær. Vá hvað ég sakna þín! En að öðru... mér fannst ógó fyndið að lesa þetta enda hamaðist ég við að reyna að vera jafn gáfuð og þú í gamla daga (þú gleymdir alveg þetta með kennarasleikjurnar). Er reyndar löngu hætt því, enda hefur þú alltaf verið mér miklu framar. kys og kram | ||
| Dóra May 2, 2008 03:26 AM PDT Hmm það mætti halda að þú sért eitthvað lík mömmu þinni í miðjum prófalestri... hún fer að þvo þvott á fullu og þú ferð í andlega þvottinn ;O) Gangi þér vel í skólanum. | ||
| Hlín May 2, 2008 02:30 AM PDT Af hverju áttu ekki eftir að fara í doktorsnám? (Eina svarið sem ég sættist á er að þig langi það ekki) | ||
| Solveig May 1, 2008 08:24 PM PDT Vá. Núna er klukkan 19:20 og ég er ekki búin að hugsa um mikið annað í dag en það sem þú skrifar hér að ofan. Elsku Ingibjörg bara svo að þú vitir það að þá dáist ég að þér og hef alltaf gert. Þú er mín fyrimynd og alltaf þegar ég er efins um eitthvað leita ég til þín. Það var oft talað um það við mig hvað ég grobbaði mig af litlu systur sem væri smart bæði á íslensku og ensku! Ekki efast um þig því það geri ég ekki! Elska þig | ||
| Leave a Comment: |