|
Ég hef aldrei verið gift né í sambúð. Af því að ég þykist vera svo mikill besservisser um sambönd lendi ég oft í þeirri aðstöðu að vera ráðgjafi hinna giftu/trúlofuðu vina minna (twisted, ég veit). En kannski taka þau einmitt mark á mér af ég þyl yfir þeim hráar staðreyndir og tölfræði og segi þeim mitt kalda mat hreint út. Og sennilega af því að ég hef sjálf ekki verið í þeirra aðstæðum, þá verð ég alltaf jafn hissa á að gáfað og vel gefið fólk skuli virkilega koma sér í fáránlegustu aðstæður og viti ekki hinar algengustu staðreyndir um sambönd.
Ég veit að þetta er ekkert æðislega rómantísk sýn á ástina og sambönd...og algengustu viðbrögð vina minna eru að segja að þeir eða þeirra aðstæður séu öðruvísi og ekki hægt að setja þá í sama mót og aðra og jaríjaríjarí. |
| Erna May 29, 2009 12:48 PM PDT Vá og þú ert frænka mín æðislegt :D Vonandi hittumst við fljótlega. | ||
| maría erla May 9, 2008 10:49 AM PDT hahaha ég hló þegar ég las þetta - snilld :) | ||
| Ragna Björg May 8, 2008 02:54 PM PDT vaaaaá :) ég ætla að save-a þetta einhversstaðar... er sammála öllu þessu :) af hverju í HOPPANDI reykir fólk?? þessa dagana er EKKERT sem gerir mig meira reiða en fólk sem reykir.. 90% þeirra sem fá lungnakrabbamein, reykja... það eru samt ekki aðeins 2 % þeirra sem reykja fá krabbamein. en vill maður hætta á það með því að GERA sér það að reykja? | ||
| Vala Ósk May 7, 2008 02:32 PM PDT Eins og ég segi iðulega: common sense er bara ekkert svo common! :) | ||
| Unnur Björk May 7, 2008 12:49 PM PDT Það er ekkert of seint að verða sálfræðingur... annars hugsa ég oft um að við ættum að vera með útvarpsþátt vinkonurnar á laugardögum og dæla út visku okkar. Svo er mikilvægt að tala saman!!! Alltof mörg hjón/pör gleyma að tala saman. | ||
| Lára May 7, 2008 12:07 PM PDT Komst brosi á varir mínar - ekki svo létt að takast það með bloggskrifum ;) | ||
| Rósa May 7, 2008 10:59 AM PDT Snilld...... og alveg sammála p.s. enda bý ég sjálf ein.....hehehe | ||
| Petra May 7, 2008 12:11 AM PDT Þarf maður að vera eitthvert nörd til að vera sálfræðingur... annað hvort hefur maður það í sér eða ekki.... Svipað og ég hef það ekki... | ||
| Ingibjörg May 6, 2008 11:51 PM PDT mér fannst ég ekki nógu gáfuð... ;-) | ||
| Vilborg May 6, 2008 11:01 PM PDT Heyr heyr Ingibjörg, afhverju varðstu bara ekki sálfræðingur!? :-) | ||
| Leave a Comment: |